Almennir skilmálar Eldofninn

Pantanir

Eldofninn ehf (hér eftir nefnt Eldofninn) tekur við pöntun þegar greiðsla hefur borist fyrir þær vörur sem pantaðar eru. Strax og greiðsla berst sendum við þér staðfestingu með tölvupósti og þar með er kominn á samningur milli þín og Eldofninn.

Ofnæmi og óþol

Eldofninn tekur enga ábyrgð á ofnæmi eða mataróþoli viðskiptavina sinna. Á www.eldofninn.is geta kaupendur séð innihaldslýsingu á öllum seldum matvælum. Viðskiptavinir með óþol eða ofnæmi eru beðnir að hafa samband við Eldofninn á netfangið eldofninn@eldofninn.is til að afla nánari upplýsinga um ofnæmisvalda.

Verð

Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og áskilur Eldofninn sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp.

Afhending

Varan afhendist á Eldofninum Grímsbæ v/Bústaðaveg

Skattar og gjöld

Öll verð á www.eldofninn.is eru gefin upp með VSK og eru allir reikningar gefnir út í samræmi við það.

Greiðslumöguleikar

Eldofninn notar örugga greiðslugátt frá Borgun. Eldofninn þarf hvorki að taka við né geyma kortanúmer viðskiptavina sinna. Viðskiptavinur velur vöru á vefsíðunni www.eldofninn.is og þegar kemur að greiðslu er hann fluttur yfir á Greiðslusíðu Borgunar þar sem kortaupplýsingar eru skráðar og greiðsla fer fram. Greiðslusíða Borgunar tryggir að kortaupplýsingar viðskiptavina eru meðhöndlaðar í vottuðu og dulkóðuðu umhverfi og aldrei aðgengilegar þriðja aðila.

Skilaréttur

Ekki er boðið uppá að skila eða endurgreiða

Trúnaður og persónuupplýsingar

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Um meðferð allra persónuupplýsinga fer í samræmi við lög nr. 77/2000 um persónuvernd.

Lög og varnarþing

Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003.
Mál sem rísa kunna vegna samnings þessa skal reka fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Eldofninn áskilur sér rétt til að breyta skilmálum hvenær sem er.

Eldofninn ehf
Efstalandi 26
108 Reykjavík

kt 550908-0260
vsk nr 99118