Pizzeria Eldofninn
Verið velkomin á Eldofninn sem er talinn vera eitt best geymda leyndarmál Reykjavíkur
Eldofninn var opnaður laugardaginn 13. júní 2009 og er staðurinn fjölskyldurekið fyrirtæki.
Eldofninn býður uppá ekta ítalskar pizzur og er ofninn okkar sérstaklega fluttur inn frá Ítalíu. Við notum íslenskt hráefni þar sem það er hægt og erum stolt af því, búum til okkar eigin pizza sósu og deigið frá grunni daglega
Eldhúsið okkar er opið svo þú getur fylgst með öllu ferlinu. Einstök upplifun í vinalegu umhverfi, þú getur borðað á staðnum eða tekið með heim. . Verði þér að góðu.
Ellert
M.A. í pizzaskurði og áleggsfræðum frá Pizza University of Washington
Eva
P.h.d. í rifnum osti - sósueðlisfræði.